|
|
03.11.2008 20:39:13 / olina
Benz eða annar Benz />
> >
Já nú eru tímar “óstjórnlegrar gleði” hjá seðlabankanaum eða þannig , alltaf
hef ég nú þurft að taka ábyrgð á mínum fjármálum, en svo er ekki hægt að segja
um seðlabankann,,,,,,hann bara tekur og tekur það sem honum sýnist og enginn
ber ábyrgð. />
Annað mál; hér á stéttinni hjá mér stendur núna alveg splunkunýr
Benz.. ...hmmmm að vísu ekki splunkunýr í augum Jóns Ásgeirs eða Davíðs, en nýr
hjá mér,, heilum 6 árum yngri en gamla djásnið sem stendur hér líka og hlakkar
yfir öllum óförum nýja Benz. Sko djásnið er svo að miklu leiti betra en sá nýi
og Hafdís María segir að hann sé miklu flottari,,heyrirðu það JN 420???? />
Eitt er alveg svakalega athugvert í svona nýjum bíl........ ......það er
enginn dagljósabúnaður sem er reglulega búin að koma mér í skilning um það með
rafmagnsleysi og þá hlakkar nú í þeim gamla þegar hann þarf að gefa straum. />
Ég veit ekki alveg hvað ég á gera við djásnið; setja hann í Hringrás, selja
hann einhverjum guttum eða þá selja hann pólverjum, sennilega skásti kosturinn
því þá kæmist hann næst sínum uppruna sem honum er mikið í mun eftir því sem
hann tjáir nýja Benz en þeir eru víst að verða trúnaðarvinir hér úti á planinu. />
Jæja ekkert varð nú úr kaupum pólverja á djásninu enda ég ekki neitt
óstjórnlegu upprifinn yfir því, finnst bara gott að hafa hann hér úti mér til
halds og trausts. En spáið í það að núna á ég tvo Benza, og tólf felgur og
dekk......... ..........já nefninlega felgurnar af djásninu passa ekki á þann
nýja og ég er ekki alveg frá því að það hlakki í JN 420. />
Svo hefur nú ekki viðrað neitt sérstaklega vel til að aka út á Hvammstanga
eftir nýjum dekkjum á þokkalega sléttum sumardekkjum svo ég skrensa bara hér um
þorpið fram og aftur og bíð eftir hláku. />
Djásnið fær nú kanski alveg nýtt hlutverk bráðum þar sem Flosi gleðigosi er
bíllaus sem stendur, á tvo ammmmeríska kagga sem báðir eru bilaðir svo ég bauð
honum afnot af Benz ef hann vildi. Hann Flosi er nú svo duglegur að moka planið
fyrir okkur í Bakka að Benz sagði að sér væri nú ekki skotaskuld úr því að
leifa honum að aka sér. />
Já svona er nú lífið hér á bakkanum, bara bísna gott og það eru rétt að
koma jól rétt einu sinni enn, sniðugt að það styttist alltaf til jóla. />
Já nú er komin 3. nóv. og ég enn ekki búin að koma dekkjum undir nýja Benz
en ek með dekkin af “Djásninu í skottinu svona rétt til öryggis........... />
Bestu kveðjur, />
Regína />
> >
»
12.06.2008 20:47:54 / olina
SPÁNN />
> >
> >
Jamm kæru félagar
nær og fjær, kæru sveitungar og aðrir landsmenn. />
Við erum sem sagt
búin að skoða smá svæði af Spáni og ákveðin svæði af okkur eru orðin brún og
sælleg. />
En það er nú svo
rosalega langt síðan að það hálfa væri nóg.............. ... />
Þetta var frábær
ferð en nú ætlar þvottavélin mín eitthvað að tjá sig........ .. />
> >
Dekurdagar mínir komnir aftur. />
Æviágrip mitt (Candy þvottavélar) í stuttu máli. />
> >
Ef þið haldið að
það sé bara einfalt mál að vera þvottavél þá er það röng skoðun. />
Ég (Candy c836
xt) var upphaflega í eigu elskulegrar gamallar konu sem þurfti að þvo svo sem
einu sinni í viku. />
Sældarlíf. />
En svo flutti ég
vestur í Húnavatnssýslu í Ytri Torfustaðarhrepp hinn forna til fjölskyldu sem
þvoði bara nánast stanslaust upp á hvern einasta dag og það skítug föt enda
flestir í þessari fjölskyldu að vinna alskonar útivinnu og hin ýmsu
“skítadjobb” />
Þarna tók ég við
hlutverki gamallar AEG sem var alveg að niðurlotum komin og það skil ég vel. />
Svo fluttu
stelpurnar að heiman................kallinn líka svo nú tóku við mun betri
dagar, ég var ein aftur með ágætri kerlingu sem mátti sjaldan vera að því að
þvo.:þ />
Eeeeeen svo
flutti hún og hún flutti sko í heilt félagsheimili þar sem ég þvoði allt sem
þurfti að þvo, ekkert svo mjög mikið að vísu svo ég gat nú alveg “shattað” við
þurkarann í ró og næði. />
Svo núna á
dögunum þar sem ég hvíldi mig í ró næði með þurkaranum kemur kerlinginn með
fullt af rúmfatnaði og hvað haldið þið,,,,,,,ég átti að fara að þvo af heilu
gistiheimili og það á gamals aldri og þurkarinn varð sko að gera svo vel og
taka á honum stóra sínum og fara í gang. />
Þvílík kvöl og
pína fyrir okkur bæði. />
En einhverstaðar
átti ég vin, Traustan vin sem gaf Bakkastelpunum splunkunýja þvottavél og ég er
aftur komin í dekrið með þurkaranum.....Takk takk Trausti. />
> >
Já já þetta er nú
alveg nóg Candy mín en veistu hvað sláttuvélarnar mína eru búnar að vera að
púla svo ég tali nú ekki um Benz???????????????????? />
Við erum sko
búnar að slá og slá og slá og slá og slá og Benz búin að keyra burt fullt af
grasi og alskonar drasli svo hættu nú að kvarta. />
> >
Já þetta var
stutt ágrip þvottavélarinnar Candy c836xt áður en ég gat stoppað hana af. það
er eins og ég held fram að allar mínar vélar og bílar hafa sjálfstæða hugsun og
getu til að setja sínar skoðanir á blað............ />
> >
Bestu kveðjur úr
sveitinni, />
Regína />
> >
> >
»
11.04.2008 18:59:19 / olina
SULTUGOTT />
> >
Skjótt skipast
veður í lofti, það er að segja komin hláka eftir frost eða eitthvað álíka. />
Ákvað að blogga
smá áður en ég fer að spóka mig á Spánarströnd, bara svona rétt til að láta
ykkur öfunda mig. />
Sumsé á
þriðjudaginn 15. apríl förum við: Brynja, Guðjón, Hafdís María, Kartín, Erla,
María Rún, Trausti og svo auðvita ég til Spánar í hálfsmánaðar ferð. />
Verðum í íbúð sem
er ætluð fyrir 5-8 manns.......hmmmm gæti orðið þröngt. />
Annars er bara
allt gott hér á Bakkanum, búið að afhjúpa Brillann með eftiminnilegum og mörgum
commentum á blogg Ingibjargar. />
Vorið er alveg að
sigla í land hér og sé ég fram á að ég þurfi að slá fljótlega eftir heimkomu, þrestirnir
farnir að garga, maríuerlan ekki komin og sem betur fer ekki stelkurinn sem
heldur vöku fyrir mér á hverju vori. />
Það bar helst til
tíðinda hér í dag að við Bens hugðumst ná okkur í bensín en þá var eitthvað
bilað hér á Laugarbakka svo við urðum að fara á Tangann og tanka, sem er svo
sem ekkert í frásögur færandi. />
En þegar ég fékk
ekkert eldsneyti hér skellti ég aftur bensínlúgunni og brunaði á Tangann og tók
ekki eftir því fyrr en þar að ég hafði gleymt að setja bensínlokið á Bens, (
hugsið ykkur þetta nú bara). Ok ég var viss uma ð finna lokið á Laugarbakka en
svo var ekki, Bens afburðar-þýður svo lokið hefur vísast hangið á skottlokinu
lengi vel. />
Nú voru góð ráð dýr
enda ekkert vit í að láta bensínið á þessu verði gufa bara upp svo ég fann lok
af sultukrukku og setti fyrir........................................ekki segja
Bens. />
Bestu kveðjur úr
vorinu, />
Regína />
»
24.03.2008 21:47:36 / olina
PÁSKARNIR
BÚNIR..... />
> >
Já páskarnir eru alveg að verða búnir og enn og aftur er ég jafn hissa á að
Jesú Kristur deyr aldrei eða allavega sjaldan á sama mánaðardegi, ég er nokkuð
viss um að þegar ég dey verður það alltaf á sama mánaðardegi ár eftir ár en ég er
auðvitga enginn frelsari. />
Já já og ég veit að þetta er reiknað eitthvað útfrá vorjafndægri, tunglum
og þannig, þetta er nú samt dálítið kostulegt. />
Jæja ég er alltaf að vinna eitthvað í rjúpunum en að safna upplýsingum er
langsótt verk, ég var reyndar svo heppinn að einn ágætur maður hafði samband og
sagðist hafa fullt af upplýsingum sem hann er núna búinn að senda mér og ég er
núna að glugga í þær. />
Ég fór í þrítugs-afmæli Katrínar um helgina og hitti þar góðan hluta af
fjölskyldu Erlu, allt hið besta fólk og Katrín heppinn þar. />
Ansi flókið fjölskyldumunstur samt, þarna voru mamma Erlu og maðurinn
hennar ásamt syni hennar, hálfbróður Erlu. Pabbi Erlu ásamt tveim sonum sínum,
líka hálfbræðrum Erlu og svo tvær ömmur og systir Erlu sem er svo ekki systir
hennar.............já og svo lítill gutti sem reyndist vera barnabarn
æskuvinkonu minnar. Eins og ég sagði leist mér alveg prýðilega á mannskapinn. />
Ég fann fjársjóð í dag. Sko er búin að vera að laga til eitt herbergi hér í
kjallarnum sem var áður búr kvenfélagsins, búin að taka niður hillur ogborð,
sparsla, mála og svo var ég að rífa af ónýtan dúk og viti menn undir honum var
þetta líka forláta gólf með einhverju fíneríi á en allt útatað í málningu og
fleiru leiðinlegu. Nú vantar mig að vita hvað ég get notað til að hreinsa þetta
forláta gólf. />
Hehe eitt skemmtilegt gerðist annað ég var að sníða gereft kringum gluggann
og gekk svona sérdeilis prýðilega, komnar þrjár hliðar og bara ein eftir. Ég
mældi og sagaði en ææ sniðið var vittlaust og ég varð að bíta í það súra epli
að ég hafði gert mistök,,,,, veit svo sem að samskonar mistök gerast á bestu
heimilum.......hehe. />
Jæja hætt í bili og það er ekki enn alveg orðið bjart svo passið ykkur. />
Kveðja, />
Regína />
»
13.02.2008 19:45:08 / olina
SKEMMTILEGT
Já og já jæja nú hafa
væntanlega allir landsmenn séð hvað ég var að sækja
um....
Ég er bara mjög stolt
af að hafa fengið það sem ég fékk og ætla mér ekki að láta staðar
numið að sinni.
Krókódílarnir
kröfluðu sig að vísu útaf borðinu en á eftir að reyna við þá aftur
seinna, kanski í skemmtilegu framhaldi af rjúpnaeldi.
Annars er allt gott
að frétta af mér, mínum og mínum Bens, held nú að hann hafi bara
verið feginn að fá frekar rjúpur en krókódíla.
Endilega segið ykkar
skoðun á nýjasta uppátækinu mínu, sagði við blaðakonuna á 24
stundum að ég fengi mikið af hugmyndum en yfirleitt gerði fólk svo
mikið grín að mér að ég léti þær ekki uppi.
Bestu kveðjur héðan
úr myrkrinu sem er að víkja fyrir birtunni,
Regína
»
24.01.2008 18:26:32 / olina
JAHÁ....
Þetta er nú bara
ekkert að verða skemmtilegt allt saman, borgarpólítíkin, veðrið og
handboltinn.
Byrjum á
borgarpólítíkinni: jú fyrst er kosið og Viljálmur verður
borgarstjóri, svo kemur hallarbylting og Dagur verður
borgarstjóri.....aftur hallarbylting og Ólafur
borgarstjóri,,,,,halló “já sæll” eins og einhver sagði eru þá ekki
þrír borgarstjórar á launum eða biðlaunum.
Boðaðar lækkanir
á fasteignagjöldum,,gott mál en hvað gerir það fyrir þá verst settu
sem eiga ekki einu sinni fasteign, hjálpar það einyrkjunum sem búa
afskiptir í blokk á okurleigu og enginn skiptir sér af fyrr en þeir
eru farnir að lykta illa????
Já og svo
veðrið..............víst heldur lítið sem við getum gert í því en
það er alveg að verða eins og borgin,,,,maður veit aldrei hvað
gerist á morgun.
Handboltinn:
skandall útaf fyrir sig en að mínu mati stóðust stákarnir
okkar ekki pressuna sem á þá var sett,,,,”þeir áttu að
vinna, í það minnsta komast í 3ja sæti, ef ekki þá í 7unda”.
Þessir strákar eru allir úrvals-góðir en kröfurnar til þeirra eru
alltof miklar þar sem þeir eru að spila út um alla Evrópu og fá
lítinn tíma til að stilla sig saman. Kanski væri nú athugandi að
sleppa nokkrum borgarstjórum og fullt af svona óráðsýju hjá ríki og
borg og borga strákunum góð laun hér heima. Annað eins fer nú í
meiri vitleysu en það, mundi hvetja ungt fólk til dáða.
Jæja jæja jæja
“eigum við að ræða þetta eitthvað frekar”
það er enn
úrvals gott myrkur og passið ykkur á því,
kveðja
Regína
»
31.12.2007 16:52:26 / olina
GLEÐILEG JÓL Já gleðileg jól ágætu lesendur og aðrir. Ég hef stundum fengið svona jólabréf frá ættingjum og vinum og nú ákvað ég að skrifa svona jólabréf............... Árið hefur bara verið alveg stórfínt, fór tvisvar til Danmerkur, fullt af ættarmótum og Bens og Gormur við góða heilsu. Stelpurnar báðar í góðum gír, önnur á Akranesi og hin á Laugarbakka, báðar með sínu sambýlisfólki við góða heilsu. Annars er það helst að segja frá síðasta bloggi að Bens auðvita flaug í gegnum skoðun og er komin með nýja framrúðu og þar af leiðandi hættur að leka beint niður á sjálfskiptinguna. Rúðuna fengum við út úr tryggingunum þar sem ég fór fram úr saltbíl í Norðurárdalnum og rúðan varð öll mött og ógeðsleg...... ....magnað hvað lakkið slapp. Í gær 30.des var svo hvasst hér að þegar kötturinn fór út varð ég að hlaupa á eftir honum og rétt náði í skottið á honum áður en hann fauk út á Heggstaðarnes og þá var ég nú heppinn að Cleó kom á eftir mér, greip í hælinn á mér og dró okkur kisa inn. Ruslakassinn fauk á Bens...tvisvar, eftir smá rökræður við Bens benti hann mér á að frá honum færi hann ekkert lengra svo ég lét hann bara vera þar þar til lygndi. Grillið datt á andlitið og við Katrín og Erla héngum láréttar í bæði grillinu og hurðinni til að koma því inn. Svo lak svo mikið inn í höllina að ég gerði upptæka að minnsta kosti nokkur hundruð lítra eins og lögreglan í Kópavogi, en ég hellti því nú bara í wcið. Jæja nú hætti ég þessu bulli og bara munið það að: “það má aldrei láta góða sögu gjalda sannleikans” Bestu kveðjur um gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir gamla árið frá okkur Bens og Gormi. Regína
»
10.12.2007 21:35:42 / olina
GEIRI
Ég hef undanfarið verið að fylgjast með
fréttum, margt markvert á ferðinni þar, en eitt sló mig fréttatíma
eftir fréttatíma, dag eftir dag og bráðum viku eftir
viku.
Það er málið með þennann Geira, er þetta
Geiri hennar Stefaníu eð bara alls óþekktur Geiri,
heilbrigðis-Geiri, aðskilnaðar-Geiri, erlendur eða innlendur Geiri.
Allavega mjög sérstakur Geiri sem allir tala um mörgu sinnum á
dag,,,,sæll Geiri!!!
Er þetta einn og sami Geirinn eða margir
Geirar,,,,,,,,,úff Geiri þú ert ágætur en ekki í öllum þessum
útgáfum, vil bara hafa veiði-Geira, Hraundals- Geira og
Stefaníu-Geira.
Annað mál, í dag sótti ég um styrk til
vinnumálastofnunar um ákveðið verkefni. Ef það gengur upp verður
gaman. Nei segi ekki um hvað ég sótti en það er í
atvinnu-Geiranum, ,,,meira að segja nýsköpunar-Geiranum . Ekki
Krókódílar þetta sinnið en það kemur að þeim aftur ásamt eðlum,
slöngum og skjaldbökum.
Verið sæl að sinni og passið ykkur á
myrkrinu sem fer nú að birta innan skamms,
Regína
»
04.11.2007 18:12:36 / olina
BENZ Jæja nú finnst mér nú Benz vera að verða aðeins of sjálfstæður, þó það sé nú kanski bara vel meint. Svo er mál með vexti að í hvert sinn sem ég starta fara þurkurnar í gang............ ......sem er í sjálfum sér mjög gott ef það er rigning en öllu verra ef það er mikið frost og klaki....... .. Svo á hann það til að vilja alls ekki fara lengra eins og ég hef víst áður sagt en þá loga öll ljós og eyða rafmagninu. Útvarpið þar ég alltaf að endurstilla eftir hverja gangsetningu...... ...það er ekki eins og ég sé eitthvað að kvarta en nú er alveg að verða nóg komið sama hversu ég dekra við hann, set undir hann vetradekk, þvæ hann endrum og sinnum og bóna einstaka sinnum. Það er heldur ekki eins og það sé einhver annar bíll í siktinu, alls ekki en hvers á ég að gjalda að sitja uppi með þessar tiktúrur.???? Þarf að fara að eiga við hann orð undir fjögur og gera honum skiljanlegt hver ræður hér á bæ.................kanski ég fari bara með hann á verkstæði eða eitthvað álíka í smá hressingu. Sumir fara á heilsuhælið í Hveragerði, kanski ég sendi Benz bara í Bílagerði í smá upplyftingu og endurnæringu. Tökum svo kanski bara Norrænu og ökum til Grikklands og teljum höfrunga í sameiningu ég og Benz, hann ætti allavega að vera ánægður með að bruna í gegnum heimalandið svona einu sinni á æfinni. En svona í alvöru talað þá ætla ég að nota gamla góða Benz þar til hann kemst í fornbílaklúbbinn og ef til vill mun lengur, erum komin í 324.024 km og ætlum í 500.000, gott markmið ekki satt???? Bestu kveðjur og myrkrið er að verða bísna svart, Regína
»
29.10.2007 19:50:10 / olina
SKEMMTILEGT ATHYGLISLEYSI Tvennt er það sem sífellt hrjáir mig sem íbúa Ásbyrgis hvert haust, annars vegar að það næst ekki upp hiti í húsinu fyrr en Hjalti pípari er búin að koma og berja svolítið í inntakið og svo hitt að frárennslið virðist vera komið í þann takt hér niðri hjá mér að stýflast alltaf á haustin. Ég er nú þokkalega róleg yfir frárennslinu þar sem ég hef 8 önnur klóstett upp á að hlaupa, verra er með sturtu og þvotta. Allavega gerðist þetta hér um daginn og ég hafði samband við áhaldahúsið og bað þá um að redda þessu, já og ekkert sjálfsagðara. Þarna bý ég nú í eina viku eða svo og þori alls ekki að fara í sturtu eða þvo þvott.............................. Einn dag er ég og Bens brunðum heim frá Hvammstanga mætum við holræsa-bílnum og ég bölva í hljóði..........missti af honum. Líða nú svo einn eða tveir dagar og ég fer reglulegan rúnt um öll klósettin og sturta niður, skil þá ekkert í því hversu lítið vatn er í hverri skál.....það er ekki svo langt síðan ég fór síðasta rúnt,,,,,hefur hundurinn drukkið úr öllum skálum eða hvað????????????? Þetta var hið mesta umhugsunar-efni og loksins í gær komst ég að því að holræsaþjónustan var á ferðinni hjá mér, án þess að ég vissi, og ég enn skítug og öl mín föt. En það er nú ekki allt........spáið í það ef ég hefði nú setið á skálinni þegar þeir komu..................................................... Hjalti kemur svo á morgun og reddar hitanum, vonandi kemst þá hitastigið upp fyrir 16 gráður....innandyra. Gaman að þessu ekki satt????? Kveðja og passið ykkur á myrkrinu, Regína
»
04.10.2007 20:17:08 / olina
Magnað hvernig maður getur orðið ruglaður: Já eins og þið flest vitið vinn ég sem skólaliði, alveg hreint ágætis starf sem felst í því að hafa aðhald og fylgjast með í frímínútum, þrífa og yfirleitt að allt fari vel fram i skólanum utan kennskustunda. Stundum þarf maður að vera leiðinlegur og henda öllum nemendum út vegna hávaða en þau vita nú yfirleitt upp á sig skömmina og auðvita getum við gert mistök líka og þá er einmitt vo gott að fá ábendingar frá nemendum. Svo eru þessir krakkar alveg hin mestu ljós. Ætla ekki nánar út í þetta en eitt skemmtilegt atvik átti sér stað í gær þegar allir voru að fara heim og þetta skemmtilega atvik snýr auðvita að mér þar sem ég er alveg óhrædd við að láta gera grín að mér og tek því bísna vel svona yfirleitt, nema ég sé alveg yfir-kolrugluð af breytingarskeiðinu. Allavega í þessu ákveðna tilfelli verður einn nemandi eftir og ég byrja að fjargviðrast yfir skólabílstjórum eina ferðina enn, hleyp upp, lít á númeraskrána, ríf símann upp úr vasanum og hringi....................hver er þar...........Grétar.........Grétar og hver ert þú........ertu að keyra fyrir X............nei ég er bara ég........jæja þá rangt númer svo ég hringi í hitt númerið en nei takk “slökkt er á þessum farsima..................” Nú fór ég að verða verulega reið og allt í gegnum símann minn........sko skyldi sko fá það borgað. Reyndi svo fyrra númerið aftur og viti menn rétti maðurinn svaraði og snéri við til að ná í nemandann. Og þarna gekk ég um og reifst við sjálfa mig (sem betur fer engann annann) yfir því að ég þyrfti að nota minn eigin síma. Skoðum málið: Ég hljóp upp á kennarastofu, leitaði upp símanúmerið hjá viðkomandi bílstjóra, reif símann upp úr vasanum og hringdi, þrisvar. Það var ekki eins og að héngi ekki sími á veggnum beint fyrir framan augun á mér,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,hvor er ruglaðari ég eða skólabílstjórinn Passið ykkur á myrkrinu, Regína
»
24.09.2007 19:28:47 / olina
Þvílík veiðiferð........ Já eins og ég sagði í síðasta bloggi áskotnaðist mér dagsstund í Miðfjarðará- silungasvæði, þarf ekkert að fara nánar út í það hvernig en allt alveg löglegt og fínt. Ég auðvita voða góð með mig og bauð Trausta með mér, hann hafði aldrei veitt Miðfjarðará, svo bauð ég Stellu og Eið, þau höfðu heldur aldrei veitt í Miðfjarðará. Ég hef reyndar ekki veitt þar lengi heldur svo þetta var kærkomið tækifæri og ég bar mig vel þrátt fyrir vonda veðurspá og hvatti þau öll til dáða með loforði um logn og fínt veður. Stella og Eiður komu norður á laugardagskvöldið, veiðin átti sem sagt að fara fram á sunnudag eftir hádegi. Við borðuðum frábæran marineraðan lax að hætti Stellu, átum svo osta, vínber og kex með smá bjór og hvítvíni um kvöldið og enn var logn og blíða. Á sunnudeginum vöknuðum við bara á normal tíma svona ca. 10:30 og við Stella fórum í vetvangsferð til að kanna svæðið og vita hvort einhver væri að veiða fyrripartinn eftir að Eiður hafði galdrað fram “skrambluð” egg með ýmsu góðgæti. Þetta var klukkutímaferð sem endaði með því að ég hringdi í Tóta á Bakka til að vera viss hversu langt upp eftir ánni við mættum fara,,,,thja stórt er spurt, jú hérna uppyndir túnið hjá pabba, jú jú svona í námunda við neðri raflínuna. Þetta á að vera greinilega merkt með “The end trouth fishing”. Við sáum aldrei þetta merki enda var svo mikið í ánni að við komumst að því að það var langt út í á og meira að segja með hjálp ágætis kíkis gátum við ekki lesið það svo vel væri. Og enn var nánast logn og enginn var að veiða fyrripartinn,,,,usss usss alveg fullt af fiski handa okkur. Nú fer að draga til tíðinda, upp úr tvö fórum við að taka okkur til, finna vöðlur, hnýta öngla, finna spúna, kaupa nesti og bara svona yfirleitt gera okkur klár í veiðferð þar sem átti sko aldeilis að taka á því. Og enn nánast logn..................... Vá hvað ég var ánægð með mig og veðrið.......................... Svo var brunað af stað og meira að segja Kleó fékk að koma með gegn loforði um að busla ekkert í ánni, nesti og góðir skór, allt með í farteskinu sem gagnast gæti í þessari ágætu veiðiferð. Farið fram að neðri raflínu, þar hófu Stella og Eiður veiði en við Trausti fórum niður í Hornhyl, hef reyndar ekki hugmynd um hvort þetta er á laxa eða silungusvæði en svona byrjaði þetta í alveg skaplegu veðri, aðeins að byrja að hvessa en ekkert sem fælir góða veiðimenn í burtu. Þarna beitti ég einhverjum forláta maðki og henti út, flotið ásamt önglinum og maðkinum rak auðvita undan straumi og svo hvarf allt.......”ansk.... gat nú verið að ég þyrfti að festa strax í byrjun”, en viti menn það var fiskur á önglinum og ég varð svo hissa að ég missti hann fyrir einskærann klaufaskap. Nú var lognið aðeins farið að hreifa sig all-hressilega og þegar stöngin var farin að líta út eins og s, aðalvinnan var að leysa girnið úr stráunum á bakkanum, ómögulegt var að sjá í hvaða átt áin rann og maður varð að sæta lagi til að geta yfirleitt komið öngli út fannst mér nú eiginlega nóg komið. En það var nú ekki allt, Eiður sem er nú frekar stór maður mátti þakka fyrir að hann setti í fisk rétt í þann mund er hann var að fjúka upp á Arnarvatnsheiði, Stella var líka heppinn niður undir brú að hún henti út og krækti í einhvert tréverk undir brúnni sem hélt henni láréttri þar til Eiður náði henni niður á jörðina og tróð henni inn í bíl. Trausti var svo heppinn að vera með lambhúshettu en ekki derhúfu því það þá hefði hann örugglega tekist á loft og ég rétt náði í skottið á Kleó rétt í þann mund er ég var að missa af stráunum sem héldu mér á jörðinni. Ég týndi báðum grifflunum mínum sem voru þó í vasanum en bara við að opna eitt hlið fuku þær út í veður og vind. En eitt er alveg víst.........það getur engin sagt að við höfum ekki reynt............ Bestu kveðjur og passið ykkur á myrkrinu, Regína
»
20.09.2007 20:06:16 / olina
HEPPNI Er maður ekki ótrúlega heppinn þegar maður hefur góða vinnu, á góða vini og fjölskyldu? Ég held það. En svo getur maður verið heppinn að öðru leiti, t.d. þegar Laxa.is hringir og býður manni þrjár stangir í Miðfjarðará..............að vísu bara á silungasvæðinu og það er nú bara gott því hitt svæðið er svo stórt að burðast með þrjár stangir á bakinu + allann aflann. Og er maður ekki líka heppinn þegar maður ákveður að kaupa nýja dýnu í rúmið á 145 þúsund og fær hana á 125 þúsund og frían flutning. Og getur látið einhvern ættingja hafa gamla rúmið sem er alveg prýðilegt en hentar mér bara ekki. Já og svo þetta með varðhundinn á þessum síðustu og verstu tímum, ég ætlaði sem sagt aldrei að fá mér hund eftir Fíu en sit nú uppi með Kleó sem lætur sko engann vaða hér inn og rupla og ræna frá mér tölvum, flatskjáum og fleiru girnilegu. Er ekkert að kvarta, hún er alveg ágæt. Svo þessi heppni með köttinn Gorm, en ég ætlaði sem sagt heldur aldrei að fá mér kött eftir Tímón, Gormur sér um flugurnar og Kleó hjálpar honum. Svo er það þessi skemmtilega heppni að vera húsvörður í félagsheimilinu, skemmtilegt starf og ég get valið úr ættum til að láta ættleiða mig inn í. Þetta er ekki kaldhæðni ég er ánægð með þetta allt og vil alls ekki skipta út fyrir bankastjóra sem hefur 800 milljónir í árslaun, aumingja maðurinn hlýtur að vera hálf vitstola hvernig hann á að nota þessa aura. Meðan ég hef stelpurnar mínar ánægðar með sitt, yndislega barnabarnið HM, góða vinnu, góða vini, hundinn og köttinn þá kvarta ég ekki. Ég má auðvita ekki gleyma Bens sem stendur sig eins og hetja þó framrúðan sé að detta úr og það leki þar inn í miklum rigningum, við björgum því með fötum og tuskum. Þó ég nenni ekki að þvo upp á hverjum degi, þó ég nenni ekki að ryksuga og skúra vikulega, þó ég nenni ekki að pússa gler og spegla, hvaða máli skiptir það, mér líður vel með sjálfa mig og það er auðvita aðalmarkmiðið ekki satt. Já svona er þetta bara og mér líður vel. Passið ykkur á myrkrinu, Regína
»
10.09.2007 22:53:43 / olina
RIGNING Byrjun september eða svo: Bara frábært, allt orðið grænt aftur sem var að sviðna og ormarnir vaðandi um allt, verst að veiðitímabilið er alveg að verða búið. Hef nú samt farið á kvöldin aðeins að týna maðka, það er svo gaman. Gekk nú illa fyrsta kvöldið því þá voru bæði Gormur (kötturinn) og Kleó (hundurinn) að forvitnast um hvað ég væri eiginlega að gera. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur, ég með vasaljósið rínandi ofan í grassvöðrin og hundurinn og kötturinn líka. En þau voru ekki alveg nógu passasöm svo ég rak þau inn og þá fór þetta að ganga. Og engir smá maðkar sko skal ég segja ykkur alveg heilu slöngurnar svo nú fer ég bara að vökva vel næstu sumur og leggjast í ormatýnslu handa veiðimönnum. Fer svo til Grikklands fyrir ágóðann og tel höfrunga þar. Annars er nú ekkert merkilegt í gangi svo sem, er farin að vinna aftur í skólanum og það er ágætt. Ættarmótin búin og rólegheit framundan hér í húsinu eftir réttirnar. Það sem leggst nú einna verst i mig núna er að ég þarf að fara að klippa tréin aftur og er ég að manna mig upp í það. 10.september eða svo: Hvað er eiginlega í gangi hérna, það var engin að tala um mánaðar rigningu og slagveður sko.............. annars eru réttir og göngur ásamt réttarballi afstaðið, gekk bara vel eftir því sem ég best veit og bara þokkalegasta veður svona mestan hlutann (þó Guðbjörg hafi blotnað alveg inn að skinni í einhverri reið fram í sveit, ég segi nú bara: betra að vera heima og grilla ofan í mannskapinn þó hann hafi nú mætt misjafnlega í matinn og sumir ekki fyrr en daginn eftir......) Ballið fór prýðilega fram og ekki mikið um slagsmál en hið mikla reykingarbann innandyra sem hefur það í för með sér að mun heilbrigðara loftslag er og miklu auðveldara að þrífa hefur töluverð áhrif utandyra. Það er með ólíkindum hvernig fólk gengur um, hendir öldósum, sígarettustubbum og ég veit ekki hverju frá sér þar sem það stendur þó að öskubakki sé við tröppurnar og dósapoki fyrir innan dyrnar. Væri nú ekki allt í lagi að fara aðeins að hugsa og ganga betur um gott fólk? Gamli góði Bens fékk að standa hér út á túni og horfa á herlegheitin og var bara ekki sáttur, næst lánaég honum videovél svo hann geti bara tekið þetta allt upp svo ég geti skoðað hverjir eiginlega ganga svona um. Eitt var ég gasalega ánægð með þegar ég kom út, það var alveg heil og óopnuð dós á borðinu hérna fyrir utan hjá mér og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar auðvita. Ákvað samt að fara og tína upp allt ruslið fyrist og gæða mér svo á bjórnum...... ........en ææææ þetta var þá dós sem var gölluð, sem sagt gat á henni en innsiglið lokað...... ...bömmer. Jæja hætt þessu í bili, nú er komið myrkur svo passið ykkur á því, kveðja Regína
»
22.08.2007 22:56:06 / olina
GÓÐ VEÐURSPÁ................... Rigning og aftur rignin, er þetta ekki dásamlegt, grasið, tréin og allur annar gróður hrópa húrra og maður heyrir bókstaflega grasið vaxa. Meira að segja gæti maður farið að slíta einn og einn orm upp sem hefur ekki sést hér í sumar. Já orma þarf ég til að fara að veiða gott fólk og stefnan er tekin upp á Arnarvatnsheiði um helgina. Svo sviðalappir og eftil vill sigin grásleppa á matseðlinum,,,,ummmmmmmmmm. Töluverður möguleiki á við skessur fjórar trítlum þarna uppeftir og reynum að fanga svo sem eins og einn ref, fáeina minka, 35 silunga og einn og einn lax...........nei þetta var nú bara grín sko.Auðvita ætlum við að veiða karla.................hehe Annars er ég búin að vinna eins og útseldur þræll frá afríku ásamt mínu samstarfsfólki þessa vikuna, erum að breyta hóteli í skóla, það verður mikill léttir þegar sjálfur skólinn byrjar og við förum að vinna með unglingunum sem er svo ljúfir hér um slóðir og reyndar allstaðar annar-staðar líka. Eitt hef ég út úr þessu: engir bingóvöðvar og reyndar bísna sterk miðað við aldur og fyrri störf. Sumarstörfin hjá mér eru búin og var þetta bara gaman þó ég hafi skúrað og ryksugað 12 sinnum, þrifið klósett 112 sinnum þa´hitti ég fullt af skemmtilegu fólki sem ætlar að koma aftur. Já ekki má nú gleyma öllum slættinum hér úti á mínum eðal-traktor, klippingu á trjám og allskonar stússi. Það er þetta sem gefur lífinu lit og ég er ánægð með sumarstarfið og er það ekki einmitt þannig sem það á að vera. Þetta er leiðinleg blogg en ég æla að láta það flakka, passið ykkur á myrkrinu sem er alveg að koma, kveðja, Regína
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|